9 ára - RJÚPA
Skóladagatal Krikaskóla telur 200 daga í ári, meðan hefðbundið skólastarf grunnskóla telur 180 daga. Skóladagur grunnskólabarna í 4. bekk er frá kl. 9:00-14:00. Kennslustundir eru 27 á viku hverri miðað við 40 mín. kennslustundir.
Inn í skóladag barnanna er fleytt frístundastarfi sem veitir svigrúm og tækifæri til fjölbreyttra verkefna, sérstaklega rýmri leiktíma og samfelldri útivist daglega. Eins eru ávaxta- og sögustundir á hverjum morgni frístundatími.
Í samþættri frístund á kennslutíma, sinna umsjónarkennarar börnunum í sögu- og ávaxtastund alla daga. Sömuleiðis njóta börnin leiðsagnar þeirra í fataklefanum á leið sinni í útiveru á hverjum degi.
Umsjónarkennarar
Egill Jóhannsson egill.johannsson@mosmennt.is
Vala Margrét Jóhannsdóttir vala.margret.johannsdottir@mosmennt.is
Ásthildur S. Haraldsdóttir Þroskaþjálfi
Verkefnastjóri grunnskóla
Sigríður Ásdís Erlingsdóttir sigridur.asdis.erlingsdottir@mosmennt.is