logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Opnun í blíðskaparveðri

29/06/2012

Göngubrú opnuð (Small)Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra klippti tvívegis á borða í gær, 28. júní, til að opna formlega göngubrú við Krikahverfi í Mosfellsbæ og samgöngustíg meðfram Vesturlandsvegi. Hann naut aðstoðar Hreins Haraldssonar vegamálastjóra og Haraldar Sverrissonar bæjarstjóra í Mosfellsbæ. Blíðskaparveður setti mark sitt á klippingarnar sem og söngur barnanna úr Krikaskóla.
Vegamálastjóri minnti og á að göngubrúin væri umferðaröryggismál og þótt stundum mætti heyra annað þá væri Vegagerðin stöðugt að sinna umferðaröryggi, það væri ekki bara eitt af helstu markmiðum Vegagerðarinnar heldur líka keppikefli að vinna vel í þeim málaflokki.
Göngubrúin yfir Vesturlandsveg, (Hringveg) við Krikahvefi er 60 m löng með þrem millistöplum og stálstaurum til endanna og yfirbygging er eftirspennt steinsteypa. Í verkinu er einnig innifalin gerð göngustíga til að tengja mannvirkið við stígakerfi Mosfellsbæjar ásamt landmótun.  Verkið er unnið í samvinnu Vegagerðarinnar og Mosfellsbæjar sem annaðist malbikun stíga og ýmsan umhverfisfrágang
Stofnstígurinn meðfram Vesturlandsvegi er líka samvinnuverkefni Mosfellsbæjar og Vegagerðarinnar þar sem hvor aðili um sig greiðir 50% kostnaðar. Fyrsti áfangi framkvæmdarinnar sem nú er verið að taka í notkun er um 1300 m langur samgöngustígur sem nær frá Litlaskógi við Hlíðartún og að Hamrahlíðarskógi. Gengið var til samninga við lægstbjóðanda um verkið sem var Fagverk ehf. Mosfellsbær annaðist umsjón og eftirlit verkefnisins.

Myndir frá opnun brúarinnar og göngustígsins, myndirnar tók G. Pétur Matthíasson/Vegagerðin.

Göngubrú gengið yfir (Small) 

Nýr göngustígur Börn

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira