logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Ökumenn hvattir til að sýna aðgát

19/08/2012

Börn að leikSkipulags- og byggingarnefnd Mosfellsbæjar beinir þeim tilmælum til ökumanna að sýna sérstaka aðgát í umferðinni nú þegar skólar hefjast að nýju eftir sumarleyfi. Einnig hvetur nefndin sem flesta til þess að fara fótgangandi í skóla.

Nú eru grunnskólar bæjarins að hefja störf að nýju og fjöldi skólabarna er nú að hefja skólagöngu í fyrsta sinn og því að feta sín fyrstu sín fyrstu skref í umferðinni ein síns liðs. Mosfellsbær beinir þeim tilmælum til ökumanna að fara að öllu með gát og gæta sérstaklega að litlum einstaklingum sem eru að læra á umferðina. Hvetur Mosfellsbær alla að sem flestir gangi til skóla, enda er það bæði holl og góð hreyfing auk þess að draga úr umferð við skólana.

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira