logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Evrópsk samgönguvika í Mosfellsbæ

18/09/2012

SamgönguvikaDagana 16. – 22. september mun Mosfellsbær taka þátt í Evrópsku Samgönguvikunni, European Mobility Week, en yfirskriftin í ár er „á réttri leið“.  Tilgangur samgönguvikunnar er að vekja athygli á vistvænum samgöngum og hvetja almenning til að nýta sér almenningssamgöngur, hjólreiðar og aðra vistvæna fararkosti.

Mosfellsbær hefur verið virkur þátttakandi í samgönguvikunni undanfarin ár og í ár verður boðið uppá ýmsa viðburði tengda vistvænum samgöngum bæði í Mosfellsbæ og annars staðar á höfuðborgarsvæðinu.

Meðal þess sem verður í boði er hjólaævintýri í tengslum við Dag íslenskrar náttúru sunnudaginn 16. september, prentun nýs hjóla- og gönguleiðakorts fyrir Mosfellsbæ sem dreift verður á helstu staði í bænum, hjólaþrautir á miðbæjartorgi, málþing um vistvænar samgöngurHjólum til framtíðar, sem haldið verður í Iðnó föstudaginn 21. september og viðburði tengda átakinu „Hjólað í skólann“ og Bíllausa deginum.

Hægt er að lesa hér um dagskrá samgönguviku


Tökum þátt í að gera bæinn okkar enn betri með vistvænni samgöngum.

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira