logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Lausar stöður í Krikaskóla

24/05/2013

Krikaskóli merkiKrikaskóli er leik- og grunnskóli fyrir börn á aldrinum 1-9 ára og starfsemin tekur mið af skólastefnu Mosfellsbæjar um heildstætt uppeldis- og skólastarf í leik- og grunnskólum.  Skólaárið 2013-2014 verða börn á aldrinum 2ja-9 ára í skólanum.  Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér skólastefnu skólans á heimasíðu hans áður en þeir sækja um starf.

Skilyrði fyrir ráðningu í Krikaskóla er að viðkomandi hafi ánægju af börnum í öllum sínum fjölbreytileika, hafi ríka samskiptahæfni í hröðu og lifandi umhverfi skólastarfsins og eigi auðvelt með að taka ábyrgð á sjálfum sér.


 

Auglýst eru laus eftirfarandi störf:

Leikskólakennarar:
Óskað er eftir leikskólakennurum til starfa frá hausti 2013 með 2ja til 5 ára börnum.  Um lifandi og skemmtilegt starf er að ræða sem þróast ört hjá okkur í Krikaskóla.  Viðkomandi þarf að vera tilbúin að taka þátt í miklu samstarfi við aðra kennara um fjölbreytta menntun barna.  Um framtíðarráðningu er að ræða.

Grunnskólakennari:
Óskað er eftir grunnskólakennara til starfa í Krikaskóla.  Grunnskólakennarar í Krikaskóla starfa saman í teymi og gert er sérstakt samkomulag við hvern og einn með heimild í kjarasamningi. Um 100% starf er að ræða.  Skilyrði fyrir ráðningu er leyfisbréf grunnskólakennara.

Íþróttakennari:
Óskað er eftir íþróttakennara til starfa í Krikaskóla.  Viðkomandi þarf einnig að sjá um sundkennslu.  Íþróttakennari Krikaskóla tekur þátt í starfi með fjölbreyttum aldri barna og kemur einnig að öðrum störfum með börnum.  Samkomulag er gert við íþróttakennara með heimild í kjarasamningi.  Um 100% starf er að ræða. Skilyrði fyrir ráðningu er leyfisbréf grunnskólakennara.

Myndlistarkennari;
Starfið felur í sér myndlistarkennslu fyrir börn á aldrinum 5 til 9 ára.  Um 40% starf er að ræða.  Þróun á starfinu er í samstarfi við umsjónarkennara, skólastjóra og sviðstjóra.  Skilyrði fyrir ráðningu er leyfisbréf grunnskólakennara

Tónlistarkennari;
Starfið felur í sér tónlistarkennslu fyrir börn á aldrinum 5 til 9 ára.  Um 20% starf er að ræða.  Þróun á starfinu er í samstarfi við umsjónarkennara, skólastjóra og sviðstjóra.  Skilyrði fyrir ráðningu er leyfisbréf grunnskólakennara.

Annað starfsfólk;
Auglýst er eftir starfsfólki til starfa í Krikaskóla. Um er að ræða ýmis störf með börnum á aldrinum 2ja – 9 ára. 

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélaga.  Við hvetjum karla jafnt sem konur að sækja um störfin.

Umsóknarfrestur er til og með 5. júní 2013.

Áhugasömum er bent á að kynna sér heimasíðu skólans www.krikaskoli.is/ og senda má inn fyrirspurn og/eða umsókn um starf á netfangið krikaskoli[hja]krikaskoli.is
 
Allar nánari upplýsingar veitir skólastjóri Krikaskóla, Þrúður Hjelm (thrudur[hja]krikaskoli.is) eða Ágústa Óladóttir sviðstjóri Krikaskóla (agusta[hja]krikaskoli.is) í síma 578-3400.

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira