logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Opið hús: Svefn og svefnvandi barna og unglinga

21/10/2014

Fyrsta opna hús vetrarins hjá Skólaskrifstofu Mosfellsbæjar
verður haldið miðvikudaginn 29. október klukkan 20.

 
Eins og fram hefur komið, verður í vetur lögð áhersla
á hagnýt ráð varðandi uppeldi og samskipti við börn
og unglinga. Ráð sem foreldrar, systkin, amma og afi,
þjálfarar, kennarar og allir þeir sem koma að uppvexti
barna og unginga geta nýtt sér.

Að þessu sinni mun Erla Björnsdóttir, sálfræðingur, fjalla
um mikilvægi svefns hjá börnum og unglingum, hvernig
best er að bregðast við svefnvanda og gefa okkur góð ráð.

Erla hefur sérhæft sig í greiningu og meðhöndlun svefnvandamála.
Hún hefur haldið fjölmörg námskeið og fræðslufyrirlestra um svefnvandamál
og hefur nýlokið doktorsnámi í svefnrannsóknum við læknadeild Háskóla
Íslands.

Svefn og svefnvandi barna og unglinga - Opið hús 29 10 2014.pdf

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira