logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Kerru og keyrða kynslóðin: Hver þarf að hreyfa sig ?

26/01/2015
Að þessu sinni fjalla Halla Karen Kristjánsdóttir og Hjalti Kristjánsson um mikilvægi hreyfingar í daglegu lífi. Hvernig komum við hreyfingu og heilbrigðum lífsháttum inn í daglegt líf barna og unglinga sem endist þeim út alla ævina?
Hverjar eru ykkar venjur og hvað stýrir þeim?
Er hreyfing og heilbrigðir lífshættir hluti af daglegum venjum fjölskyldunnar?

Varpað verður fram hugmyndum að gæðastundum fyrir fjölskylduna og leiðum til heilbrigðari lífsstíls.

Halla Karen Kristjánsdóttir hefur verið íþróttakennari til margra ára. Hún kennir íþróttir
og heilsuáfanga við Borgarholtsskóla og er einnig þjálfari í líkamsræktarstöðinni World Class hér í Mosfellsbæ. Hjalti Kristjánsson er MS í þjálfunar- og lífeðlisfræðum og starfar við endurhæfingu á Reykjalundi og HL-Stöðinni í formi fræðslu og kennslu í tímum.

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira