logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Opið hús: Kroppurinn er kraftaverk

04/03/2015
Fjórða opna hús vetrarins hjá Skólaskrifstofu Mosfellsbæjar verður haldið í kvöld, miðvikudaginn 4. mars klukkan 20:00 í Listasal Mosfellsbæjar. 

Eins og fram hefur komið, verður í vetur lögð áhersla á hagnýt ráð varðandi uppeldi og samskipti við börn og unglinga. Ráð sem foreldrar, systkin, ömmur og afar, þjálfarar, kennarar og allir þeir sem koma að uppvexti barna og unglinga geta nýtt sér. 

Að þessu sinni fjallar Sigrún Daníelsdóttir, sálfræðingur og höfundur bókarinnar Kroppurinn er kraftaverk um líkamsvirðingu meðal barna.  Í fyrirlestrinum verður rætt um líkamsmynd barna og unglinga. Hvernig fjölmiðlar og önnur samfélagsáreiti hafa áhrif á viðhorf barna gagnvart holdarfari sínu og annarra og hvernig skapa megi umhverfi sem stuðlar að jákvæðri líkamsmynd og virðingu fyrir fjölbreytileika líkamsvaxtar. 

Sigrún Daníelsdóttir er sálfræðingur og þriggja barna móðir. Hún hefur sérhæft sig í forvörnum og meðferð slæmrar líkamsmyndar og átraskana auk þess að sinna rannsóknarstörfum á sviði fitufordóma. Hún hefur sinnt gestakennslu við Háskólann á Akureyri, Háskólann í Reykjavík og Háskóla Íslands. Í bráðum áratug hefur Sigrún staðið fyrir samfélagsbaráttu á sviði líkamsvirðingar og skipulagt árlega viðburði í tengslum við Megrunarlausa daginn.
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira