logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Greta Salome kvödd í heimabænum Mosfellsbæ

27/04/2016

Í Mosfellsbæ hefur myndast hefð fyrir því að kveðja Eurovision keppendur við hátíðlega athöfn á Miðbæjartorginu séu þeir Mosfellingar.

 

Þetta er í þriðja sinn á fimm árum sem keppandinn kemur frá Mosfellsbæ og erum við ótrúlega stolt af því.

 

Föstudaginn 29. apríl klukkan 10.30 munu börn úr leik- og grunnskólum bæjarins sameinast á Miðbæjartorginu og óska keppandanum í ár góðs gengis.

 

Bæjarbúar eru hvattir til að fjölmenna og taka þátt í skemmtilegri samverustund.

 

Greta Salome er bæjarbúum af góðu kunn. Hún hefur verið virkur þátttakandi í menningarlífi bæjarins árum saman og var útnefnd Mosfellingur ársins af bæjarblaðinu Mosfellingi árið 2012.

 

Mosfellsbær óskar Gretu Salome góðs gengis í Stokkhólmi en hún stígur á svið þann 10. maí sem er fyrra undanúrslitakvöld keppninnar. 

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira