logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Sumarorlof leikskólabarna í Krikaskóla 2017

08/03/2017

Foreldrar skulu taka sumarleyfi a.m.k. 20 virka daga samfellt fyrir barn/börn sín á tímabilinu 15. maí til 15. ágúst.



Á tímabilinu 10. júlí til og með 4. ágúst er gert ráð fyrir að starfsemi leikskóla Mosfellsbæjar verði sameinaðir í leikskólanum Reykjakoti, þann tíma verður Krikaskóli lokaður. Foreldrar sem skrá börn sín í sumarleyfi utan þess tímabils s.s. í júní geta óskað eftir sumarskóla.



Mikilvægt er að vita í tíma hvenær barnið/börnin fara í sumarleyfi og því eru foreldrar beðnir að fylla út sumarleyfiseyðublað hjá deildarstjóra viðkomandi hreiðurs eða á skrifstofu skólans fyrir 24. mars. Berist skólanum ekki útfyllt eyðublað varðandi ósk um sumarleyfi telst barnið vera í orlofi frá 10.júlí til og með 4. ágúst.



Sá tími sem upp er gefinn er bindandi og verður sumarleyfum starfsfólks hagað í samræmi við fjölda barna hverju sinni.

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira