logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Gjaldfrjáls grunnskóli

15/08/2017
Bæjarráð hefur samþykkt að frá og með hausti 2017 verði öllum börnum í grunnskólum Mosfellsbæjar veittur hluti nauðsynlegra námsgagna þeim að kostnaðarlausu (s.s. ritföng, reikningsbækur, stílabækur, límstifti, skæri, plast/teygjumöppur og einfaldir vasareiknar). Mosfellsbær tók þátt í örútboði á vegum Ríkiskaupa og skilað það mjög hagstæðum verðum á námsgögnum.



Námsögn verða afhent nemendum í upphafi skólaárs. Til að hlúa að umhverfinu okkar og fara vel með sameiginlega sjóði sveitarfélagsins þá biðjum við ykkur um að leggja okkur lið og athuga hvaða námsgögn  eru til á heimilinu frá fyrri árum.  Börnin eru beðin um að koma með í skólann þau gögn sem hægt er nýta áfram (s.s möppur, pappír, stílabækur/reiknisbækur, plastvasa og fleira).  Það sem upp á vantar af námsgögnum mun skólinn bæta við. Ritföng sem þegar eru til er ágætt að eiga heimavið.



Eftirfarandi vinnureglur gilda um gjaldfrjáls námsgögn í grunnskólum Mosfellsbæjar:

• Gagnalistar eru til staðar á heimasíðum skólanna - þar er hægt að sjá hvað hver bekkur/árgangur þarf af nauðsynlegum námsgögnum -  Velji foreldrar önnur innkaup á gögnum en tilgreind eru í gagnalistum fellur sá kostnaður ekki innan námsgagna sem skólinn afhendir.

• Endurnýjun á námsgögnum og ritföngum fer fram að meðaltali á þriggja ára fresti. Undantekning er þó skriffæri (blýantar, skriftarpennar), strokleður og límstifti sem endurnýjast árlega.

• Þeir nemendur sem eru að hefja nám í 1. bekk fá ný námsgögn þar sem þeir eru að hefja sína skólagöngu.

• Námgögn eins og stíla- og reiknisbækur, sögu- og verkefnabækur og möppur eru að öllu jöfnu geymd í skólanum en fara heim með nemendum ef um heimanám er að ræða. Gert er ráð fyrir að á heimilum séu til nauðsynleg skriffæri og litir.

• Námsgögn verða ýmist sérmerkt nemanda eða verða í bekkjar, árganga,- stofu- og  eða skólasettum.

• Eftir því sem líður á námið í grunnskóla bætast við námsgögn og munu þau verða afhent eftir þörfum.

• Kostnaður vegna valáfanga er óbreyttur.

• Innan gjaldfrjálsra námsgagna eru ekki skólatöskur, pennaveski, íþrótta- og sundföt og flóknari reiknivélar (nýtast áfram í framhaldsskóla).

• Týnist eða eyðileggist námsgögn/ritföng/ (skólagögn?) vegna slæmrar meðferðar hjá nemendum eru foreldrar ábyrgir fyrir því að námsgögn séu endurnýjuð.



Nýtt fyrirkomulag á gjaldfrjálsum grunnskóla mun taka tíma að móta. Við óskum eftir sem bestri samvinnu í anda umhverfisverndar við endurnýtingu og meðferð námsgagna. 



Með góðri kveðju

Linda Udengård framkvæmdastjóri fræðslu- og frístundasviðs

Þrúður Hjelm skólastjóri Krikaskóla

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira