logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Fréttasafn

Bangsa og náttfatadagur

26.10.2020 13:24Bangsa og náttfatadagur
Þriðjudaginn 27. október er hinn alþjóðlegi bangsadagur. Þann dag eru börnin velkomin í náttfötunum í skólann og mega þau taka með sér einn bangsa.
Meira ...

Fræðsludagur starfsmanna föstudaginn 2.október

28.09.2020 14:58
Föstudaginn 2.október er Krikaskóli lokaður vegna fræðsludags starfsmanna. Þann dag koma börnin ekki í skólann/leikskólann né í frístund. Í ár mun starfsfólk sækja rafræn námskeið á vegum Menntavísindasviðs Háskóla Íslands.
Meira ...

Viðmiðunarreglur um ástundun í grunnskólum Mosfellsbæjar

02.09.2020 13:45
Á þessu skólaári taka gildi nýjar samræmdar viðmiðunarreglur um ástundun nemenda fyrir alla grunnskóla Mosfellsbæjar, þ.m.t hjá okkur í Krikaskóla. Á heimasíðunni er hlekkur sem vísar á þessar reglur. Við biðjum alla að kynna sér þær sérstaklega vel.
Meira ...

Skólasetning Krikaskóla

13.08.2020 15:09
Skólasetning Krikaskóla verður þriðjudaginn 18. ágúst á lóð skólans .......
Meira ...

Sumarorlof og sumarskólinn

09.07.2020 14:48
Sumarorlof í Krikaskóla er frá og með 10. júli til og með 7. ágúst. Þann sama tíma er Sumarskóli leikskóla Mosfellsbæjar starfræktur á Höfðabergi ......
Meira ...

Skólaslit 25. júní kl. 13:00

24.06.2020 08:06
Skólaslit skólaársins 2019-2020 í Krikaskóla eru á fimmtudaginn 25. júní kl. 13:00. Sumarstarf frístundar hefst daginn eftir fyrir þau börn sem hafa verið skráð þar næstu tvær vikurnar. Hlökkum til að sjá ykkur öll.
Meira ...

Sumarleyfi

04.05.2020 10:57
Orlofstímabilið í leikskólum Mosfellsbæjar er 15.maí til 15. ágúst. Hægt er að velja fjórar vikur, 20 virka daga samfellt innan þessa tímabils. Sumarskóli 10. júlí til og með 7. Ágúst. Á tímabilinu 10.júlí til 7. ágúst er gert ráð fyrir að starfsemi leikskóla Mosfellsbæjar verði sameinaðir í sumarleikskóla sem að þessu sinni verður staðsettur í Höfðabergi.
Meira ...

Gleðilega páska

07.04.2020 08:12Gleðilega páska
Óskum ykkur öllum gleðilegra páska og sjáumst eftir páskana í skólanum. Njótið tímans með ykkar nánustu eins og hægt er á þessum sérstöku páskum.
Meira ...

Fréttir úr Krikaskóla

30.03.2020 10:42
Skólahald í Krikaskóla hefur gengið vel og áætlanir okkar staðist. Við höfum skipt skólanum upp í svæði og börnunum er skipt í litla hópa til að mæta tilmælum um sóttvarnir. Hver árgangur mætir annan hvern dag í skólann. 2ja til 5 ára hópurinn samkvæmt sínum vistunartíma en opnun hefur verið stytt um 30 mínútur. Við lokum því kl. 16:30 daglega. 6 til 9 ára hóparnir koma til skóla kl. 9 og eru til 14:00 (1. og 2. bekkur) og til 15:00 (3. og 4. bekkur).
Meira ...

Tilkynning frá sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu um starfsemi grunn- og leikskóla, íþrótta- og menningarmála

15.03.2020 19:29
Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa síðan á föstudag unnið að útfærslu á skólastarfi, starfsemi íþróttamiðstöðva, sundlauga og menningarhúsa næstu vikna í samræmi við tilmæli sóttvarnarlæknis og stjórnvalda. Í ljósi þess að skólastarf verður með mismunandi hætti milli sveitarfélaga og innan sveitarfélaga eru íbúar á höfuðborgarsvæðinu beðnir um fylgjast vel með upplýsingum sem birtast munu á heimasíðum sveitarfélaganna og heimasíðum grunn- og leikskóla og þeirra stofnana sem við eiga. Rétt er að ítreka að á morgun, mánudaginn 16. mars verður starfsdagur í grunn- og leikskólum
Meira ...

Síða 4 af 34

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira