logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Fréttir eftir árum

Krikaskólabörn á menningarviku leikskólabarna

13.04.2011

Tilbúin fyrir skemmtunKría, Lundi og Ugla fóru og sungu í Kjarna í tilefni menningarviku Mosfellsbæjar.  Ferðin gekk vel og stóðu börnin sig með prýði. Hvetjum við ykkur til að fara og skoða verk barnanna en sýningin stendur til 15. apríl.

 

Meira ...

Menningarvika leikskólabarna

12.04.2011

Menningarvika leikskólabarnaHin árlega menningarvika leikskóla Mosfellsbæjar fer fram dagana 11-15 apríl í Kjarna. Öll börn í leikskólum Mosfellsbæjar hafa verið að vinna listaverk sem verða til sýnis í kjarnanum. Sýningin gefur innsýn í það frábæra, fjölbreytta og metnaðarfulla starf sem unnið er í leikskólum bæjarins.

Meira ...

Fóru með strætó á Orminn langa

11.03.2011

gerðuberg heimasFimm, sex, sjö og átta ára börnin í skólanum fóru á sýningu í  Menningarmiðstöðinni  Gerðubergi  sem ber heitið „Ormurinn langi“.  Sýningin er um norræna goðafræði. 

Meira ...

Fræðslufundur í Krikaskóla miðvikudaginn 16. mars

04.03.2011

FræðslufundurFræðslufundur fyrir foreldra og aðra áhugasama verður haldinn í Krikaskóla miðvikudaginn 16. mars kl. 20:00 - 21.30. Fjallað verður um hugmyndafræði Krikaskóla, kennsluaðferðir og skólabraginn. Allir velkomnir

Meira ...

Öskudagsfagnaður

03.03.2011

FurðufatadagurMiðvikudaginn 9. mars verður öskudagsfagnaður í Krikaskóla. Þá ætlum við að halda furðufataskemmtun þar sem börnin ætla að slá köttinn úr tunnunni, dansa, syngja og skemmta sér saman.

Meira ...

Innritun barna í skóla

27.02.2011

Börn að leikInnritun sex ára barna í Mosfellsbæ fer fram í mars. Innritun fer fram í gegnum íbúagátt Mosfellsbæjar. Foreldrar bera ábyrgð á að innrita börn sín í skóla.

Meira ...

Föstudagurinn 18. febrúar

17.02.2011

Börn á hjólumFöstudaginn 18. febrúar er lokað í Krikaskóla vegna starfsmannafundar þar sem starfsmenn vinna saman að faglegum undirbúningi fyrir starfið í Krikaskóla á vorönninni

Meira ...

Að tala saman um erfið mál - Opið hús í kvöld

15.02.2011

Opið húsÁ opnu húsi Skólaskrifstofunnar í kvöld, miðvikudagskvöld kl 20-21, verður fjallað um áföll í fjölskyldum, svo sem skilnað og önnur áföll, og hvernig heppilegast er að umgangast börn í því sambandi. Tekin verða dæmi um slíkar aðstæður, viðbrögð barna og fullorðinna.

Meira ...

Dótadagur

09.02.2011

Ugla nóvember 029Föstudaginn 11. febrúar verður dótadagur í Krikaskóla, þá mega börnin koma með leikföng að heiman, en viljum benda á að stríðsleikföng eru ekki leyfileg. Þetta er í annað sinn sem dótadagur er haldinn í Krikaskóla og er tilkominn vegna óska frá nemendum á öllum aldri. Mikilvægt er að brýna fyrir börnunum að bera ábyrgð á eigin leikföngum!

Meira ...

Síða 3 af 3

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira