logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Fréttir eftir árum

Aðalfundur foreldrafélags Krikaskóla

16.09.2015
Miðvikudaginn 30. september nk. kl: 20.00 verður haldinn aðalfundur foreldrafélags Krikaskóla í sal Krikaskóla.
Meira ...

Handhægar upplýsingar

11.09.2015
Haustönninn er ávallt tími breytinga hjá fjölskyldum, enda börnin að byrja í skóla og tómstundastarfi. Þetta krefst gjarnan undirbúnings og handavinnu foreldra. Við í Krikaskóla vonum að heimasíðan þjóni þeim tilgangi sem hún er ætluð og minnum á að allar upplýsingar á að vera hægt að nálgast þar. Að gefnu tilefni minni ég sérstaklega á tengilinn Hagnýtt þar sem finna má öll eyðublöð og rútuferðir, en slíkar upplýsingar eru gjarnan í mikilli eftirspurn um þessar mundir.
Meira ...

Haustkynning foreldra

25.08.2015
Haustkynning fyrir foreldra verður í Krikaskóla miðvikudaginn 26.ágúst næstkomandi klukkan 18-19.30. Þar mun Andrea Anna, okkar leiðtogi í Byrjendalæsi meðal annars kynna nálgunina í Krikaskóla ásamt því sem annað starf vetrarins er kynnt. Heitt kaffi á könnunni og vonumst við til að sjá sem flesta !
Meira ...

Ekkert skólahald á föstudag

18.08.2015
Föstudaginn 21. ágúst næstkomandi verður ekkert skólahald í Krikaskóla sökum fræðsludags hjá kennurum og öðru starfsfólki skólans. Biðjum við foreldra að gera viðeigandi ráðstafanir sökum þessa, eins og til dæmis að tæma fatahólfin fyrir helgina á fimmtudeginum 20. ágúst. Skólahald hefst að nýju mánudaginn 24. ágúst.
Meira ...

Skólasetning og frístund

10.08.2015
Skólasetning Krikaskóla verður fimmtudaginn 13. ágúst klukkan 9. Leikskóladeildin byrjaði í dag og voru margir krakkir stoltir að byrja á nýrri deild.
Meira ...

Útskrift 4. bekkjar

22.06.2015Útskrift 4. bekkjar
Það var með trega og stolti sem Þrúður skólastjóri kvaddi börnin í 4. bekk er þau útskrifuðust úr Krikaskóla í dag. Alls tók 21 barn á móti vitnisburði sínum og óskar starfsfólk Krikaskóla þeim velfarnaðar í bæði leik og starfi.
Meira ...

Rokkum á sokkum !

11.06.2015
Krikaskóli er sérstaklega stoltur af Rokkum á sokkum átakinu sem miðar að því að fagna fjölbreytileikanum. Átakinu var hrint úr vör af Sigrúnu R. Guðlaugardóttur starfsmanni Krikaskóla og hefur það undið skemmtilega upp á sig og vakið mikla athygli á skömmum tíma, með aðstoð samskiptamiðla.
Meira ...

Frí eftir hádegi þann 19. júní

05.06.2015
Krikaskóli lokar frá hádegi 19. júní og sækja þarf börnin eftir hádegismat eða milli kl. 12:00-12:30. Til að fagna 100 ára afmæli kosningaréttar íslenskra kvenna verður starfsmönnum Mosfellsbæjar veitt frí eftir hádegi þann 19. júní.
Meira ...

Vorhátíð Krikaskóla

02.06.2015
Vorhátíð Krikaskóla hefst á fimmtudaginn næstkomandi, 4. júní.
Meira ...

Skólaslit, sumarfrí og skólasetning

19.05.2015
Síðasti kennsludagur í 1-4 bekk er föstudaginn 26. júní næstkomandi. Síðasti dagur fyrir sumarorlof 2-5 ára barna er fimmtudagurinn 9 júlí. Sumarleikskólinn hefst föstudaginn 10. júlí á Huldubergi fyrir þau börn sem eru skráð þá. Mánudaginn 10. ágúst opnar Krikaskóli í Sunnukrika. Skólasetning verður fimmtudaginn 13. ágúst.
Meira ...

Síða 2 af 4

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira