logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Nánar

Fræðslunefnd

02.03.2011 16:50

Samþykkt fyrir Fræðslunefnd Mosfellsbæjar

1. gr.
Fræðslunefnd fer með fræðslumál bæjarins eftir því sem nánar er kveðið á um í lögum og í samþykkt þessari.

2. gr.
Fræðslunefnd er skipuð fimm fulltrúum og fimm til vara, kosnum af bæjarstjórn.  Bæjarstjórn kýs formann og varaformann.  Kjörtímabil hennar er það sama og bæjarstjórnar.  Nefndin skal halda gerðabók og skulu fundargerðir hennar sendar bæjarstjórn til staðfestingar.  Fulltrúar í fræðslunefnd skulu gæta þagmælsku um einkamálefni fólks sem fjallað er um á fundum nefndarinnar.  Fulltrúi skal víkja af fundi, og kalla til varamann, tengist hann einstaklingum eða málum sem fjallað er um í nefndinni, þannig að spillt geti óhlutdrægni hans og valdið tortryggni.

3. gr.
Hlutverk fræðslunefndar er að:

  • gera tillögur til bæjarstjórnar um stefnu í fræðslumálum og hafa eftirlit með að stefna bæjaryfirvalda á hverjum tíma sé haldin.
  • hafa eftirlit með stofnunum, sem vinna að fræðslumálum, og fylgjast með að þær vinni að settum markmiðum, í samræmi við lög og veiti góða þjónustu.
  • leggja mat á þá þjónustu sem veitt er á vegum sveitarfélagsins í fræðslumálum með tölulegum upplýsingum og könnunum á meðal bæjarbúa.  Einnig að fjalla um þær kvartanir sem berast vegna þjónustunnar.
  • fara yfir tillögur forstöðumanna að fjárhagsáætlun hvers árs hvað varðar þá liði sem falla undir verksvið nefndarinnar og gæta þess í ákvörðunum sínum að halda áætlanir þegar að framkvæmdum kemur.
  • vera bæjarstjórn að öðru leyti til ráðuneytis í fræðslumálum. 

4. gr.
Verkefni fræðslunefndar eru að:

  • fara með þau verkefni sem skólanefnd eru falin samkvæmt lögum um grunnskóla.
  • fara með verkefni sem leikskólanefnd eru falin samkvæmt lögum um leikskóla.
  • fara með málefni Listaskóla Mosfellsbæjar, sbr. lög um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla.
  • fara með málefni framhaldsskóla samkvæmt lögum um framhaldsskóla.
  • veita leyfi til daggæslu barna í heimahúsum og hafa eftirlit með rekstri gæsluvalla fyrir börn.
  • hafa heildaryfirsýn yfir dagvistun fyrir börn í sveitarfélaginu og sjá til þess að íbúar geti fengið aðgengilegar upplýsingar um þau mál.
  • vinna að öðrum þeim verkefnum sem bæjarstjórn felur nefndinni á hverjum tíma.

5. gr.
Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs situr fundi nefndarinnar með málfrelsi og tillögurétt. Hann er ráðgjafi nefndarinnar og sér um ritun fundargerða, nema nefndin ákveði annað. Hann undirbýr fundi í samstarfi við formann og framkvæmir ákvarðanir nefndarinnar eftir að bæjarstjórn hefur staðfest þær.

Um starfsmannamál fer eftir starfsmannastefnu Mosfellsbæjar.

6. gr.
Séu ákvæði í lögum eða samstarfssamningum um seturétt aðila utan nefndarinnar, þegar um mál þeim tengd er fjallað, skal þess gætt að þau ákvæði séu uppfyllt.

Nefndin skal gæta ákvæða stjórnsýslulaga við meðferð mála

 

Sett með heimild í 54. og 55. gr. samþykktar um stjórn Mosfellsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 428/2000.

Samþykkt á 374. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar þann 21.05.2003.

 

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira