logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Nánar

Systkinaafsláttur

27.12.2017 08:00

Samþykkt um systkinaafslátt hjá Mosfellsbæ

1. gr. Hver nýtur systkinaafsláttar
Foreldrar og forráðamenn systkina er nota þjónustu dagforeldra, leikskóla og frístundaselja Mosfellsbæjar geta sótt um systkinaafslátt svo sem í samþykkt þessari greinir.

2. gr. Samræming systkinaafsláttar
Systkinaafsláttur er samræmdur fyrir börn á stofnunum bæjarins og fyrir börn hjá dagforeldrum, þannig að öll börn sem þar njóta þjónustu telja með í útreikningi á systkinaafslætti. Ekki er veittur afsláttur af gjaldi fyrir börn hjá dagforeldrum, en niðurgreiðsla er aukin fyrir hvert barn umfram eitt sem er í vistun hjá dagforeldrum.

3. gr. Hve mikill afsláttur er veittur

  • Fyrir fyrsta barn greiðist fullt gjald skv. gjaldskrá viðkomandi stofnunar.
  • Fyrir annað barn, veitist 50% afsláttur af vistunargjaldi og/eða gjaldi fyrir dvöl á frístundaseli (þe. ekki af fæði og ekki af 4 fyrstu tímunum á viku í frístund sjá nánar 4. grein).
  • Fyrir þriðja barn, veitist 75% afsláttur af vistunargjaldi og/eða gjaldi fyrir dvöl á frístundaseli (þe. ekki af fæði og ekki af 4 fyrstu tímunum á viku í frístund sjá nánar 4. grein).
  • Fyrir fjórða barn og fleiri veitist 100% afsláttur af vistunargjaldi (þe. ekki af fæði og ekki af 4 fyrstu tímunum á viku í frístund sjá nánar 4. grein)
  • Afslátturinn skal alltaf greiðast fyrir elsta / eldri systkini og því greitt fullt gjald fyrir yngsta barn.
  • Ekki er veittur systkinaafsláttur af fæði.

 

4. gr. Hvenær systkinaafsláttur er ekki veittur

  • Ekki er veittur systkinaafsláttur fyrir fyrstu fjórar klst. í viku hverri í frístundaseli.
  • Ekki er veittur systkinaafsláttur í sérstökum opnunartímum frístundasels s.s. í jóla, páska- og vetrarfríum.
  • Systkinaafsláttur er ekki veittur ef annar afsláttur er veittur t.d. niðurgreiðslur af félagslegum orsökum.

 

5. gr. Dagforeldrar
Þegar tvö börn eða fleiri eru í vistun hjá dagforeldri sem er með þjónustusamning við Mosfellsbæ er niðurgreiðsla frá Mosfellsbæ 50% hærri með hverju barni umfram eitt.

6. gr. Upphaf og endir afsláttar

Sækja þarf sérstaklega um systkinaafslátt á Íbúagátt Mosfellsbæjar og tekur afslátturinn gildi í mánuðnum eftir að umsókn berst. Umsóknin er ekki afturvirk.

Um leið og eitt barn eða fleiri, úr sömu fjölskyldu hættir í daggæslu, í leikskóla eða á frístundaseli endurskoðast afslátturinn.

 

Samþykkt þessi er samþykkt af bæjarstjórn Mosfellsbæjar 3. desember 2014 og gildir frá 1. janúar 2015.

Samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar þann 3. desemberr 2014.

 

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira