Fréttasafn
2024
apríl, maí, júní, ágúst, september.
2023
mars, maí, júní, september, desember.
2022
janúar, febrúar, mars, apríl, september, október.
2021
janúar, mars, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2020
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, desember.
2018
janúar, febrúar, mars, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2017
janúar, febrúar, mars, apríl, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2016
janúar, febrúar, mars, apríl, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2015
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2014
apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2013
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júlí, ágúst, september.
2012
janúar, febrúar, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2011
febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, nóvember, desember.
2010
Fréttir eftir mánuðum
Opið hús hjá Skólaskrifstofu Mosfellsbæjar - Jafnrétti og tækifæri fyrir alla
18.03.2013Opið hús hjá skólaskrifstofu Mosfellsbæjar - Jafnrétti og tækifæri fyrir alla. Á Opnu húsi Skólaskrifstofu Mosfellsbæjar ÞRIÐJUDAGINN 19. MARS kl: 20-21 verður sjónum beint að jafnrétti í sinni víðustu mynd. Eiga allir jöfn tækifæri? Er virk jafnréttisfræðsla í gangi á öllum skólastigum? Erum við föst í bleikum og bláum boxum? Hvaða áhrif hefur þetta á börnin okkar? Hvert er hlutverk okkar sem foreldra?
Sumarleyfi 2013
18.03.2013Á tímabilinu 8. júlí og til og með 5. ágúst er gert ráð fyrir að starfsemi leikskóla Mosfellsbæjar verði sameinuð í leikskólanum Hlaðhömrum. Þangað færast þá börnin með starfsmönnum Krikaskóla eins og fjöldi barnanna gefur tilefni til.
Mikilvægt er að vita í tíma hvenær barnið/börnin fara í sumarleyfi og því eru foreldrar beðnir að fylla út sumarleyfiseyðublað og afhenda deildarstjóra viðkomandi deildar eða hjá ritara fyrir 22. mars.
Fylgjast með veðurspá
06.03.2013Biðjum alla foreldra að fylgjast með veðurspá morgundagsins fimmtudagsins 7. mars 2013. Gert er ráð fyrir slæmu veðri en á vef Veðurstofu Íslands er eftirfarandi viðvörun nú kl. 14:00. Búist er við stormi eða roki (meðalvindhraða meiri en 23 m/s) S- og V-til á landinu í dag og syðst á landinu á morgun. Gildir til 07.03.2013
Foreldrar meta hvort þeir senda börn sín í skóla. Skólinn verður opinn skv. viðbúnaðarstigi 1 nema annað verði tilkynnt í fjölmiðlum. Nokkur vandi skapaðist vegna erfiðleika starfsmanna við að komast til vinnu í Krikaskóla vegna færðar miðvikudaginn 6. mars 2013. (Sjá lesa meira)
Tilkynning til foreldra frá framkvæmdastjóra almannavarna
06.03.2013Eftirfarandi tilkynning hefur verið send til foreldra skólabarna og starfsmanna skóla á höfuðborgarsvæðinu:
Börnin ykkar eru örugg í skólunum. Vinsamlegast reynið ekki að komast til þess að sækja þau fyrr en lögregla hefur gefið út tilkynningu þar að lútandi.
Allir björgunaraðilar á svæðinu eru á ferðinni og einkabílar í umferðinni eru til mikilla trafala við björgunarstörf.
Minnum á viðbragðsáætlun vegna röskun á skólastarfi
06.03.2013Foreldrum er bent á að kynna sér viðbragðsáætlun vegna röskunar á skólastarfi sökum óveðurs, hana má finna með því að smella hér íslenska, pólska, enska, spænska og tælenska.
Forráðamenn skulu þó meta ef um óveður er að ræða hvort þeir senda börn sín til skóla eða ekki. Undantekningarlaust skal þó hringja á skrifstofu skólans og tilkynna ef forráðamenn ákveða að hafa börn sín heima.