Frístund / Mötuneyti
Hægt er að kaupa frístundarvistun frá kl. 7:30 til 9:00 fyrir hádegi og frá kl. 14:00 til 17:00 eftir hádegi.
Lágmarksvistun í frístund er 4 tímar á viku. Gjald fyrir hverja klukkustund er samkvæmt gildandi gjaldskrá.
Vakin er athygli á því að allar breytingar á högum barna varðandi mötuneyti og frístund þarf að tilkynna fyrir 20. hvers mánaðar ef þær eiga að taka gildi mánaðarmótin þar á eftir. Frístundar- og mötuneytisþjónusta er rukkuð fyrirfram og því brýnt að gera breytingar í tæka tíð.
Breytingar skulu tilkynntar gegnum Íbúagátt Mosfellsbæjar með því að senda þar til gerð skilaboð. (Ekki skal gerð ný umsókn fyrir hverja breytingu.)
Mötuneytisverðskrá
- Morgunmatur 124 kr.
- Ávaxtabiti 132 kr.
- Hádegismatur 460 kr.
- Nónbiti 124 kr.
(Aðeins morgunmatur og nónbiti er valkvæður milli daga og því ekki hægt að velja ákveðna daga fyrir ávexti og hádegismat.)
Foreldrar barna sem koma með nesti í skólann eru hvattir til að vanda valið og velja hollan og næringarríkan mat.