logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Sumarhátíð á föstudaginn !

01/06/2016
Sumarhátíð Krikaskóla verður haldin föstudaginn 3.júní nk. Sama dag fer fram útskrift 4.bekkjar kl 12:30.

Skemmtiatriði barnanna hefjast stundvíslega kl 13:30. Yngstu börnin byrja og svo koll af kolli. Að þeim loknum býður foreldrafélagið upp á vöfflur og skólinn upp á heitt kakó, kaffi, rjóma og sultu. 

Dagurinn er að öðru leyti hefðbundinn skóladagur hjá börnunum, en þeir foreldrar sem taka börnin sín með heim að skemmtun lokinni eru vinsamlegast beðnir um að láta vita á viðkomandi deild eða í frístund hjá eldri börnum. 


Hlökkum til að sjá ykkur öll  í sumarhátíðarskapi !

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira