logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Fréttir eftir mánuðum

Staða íþróttakennara laus til umsóknar

18.07.2013

Óskað er eftir íþróttakennara til starfa í Krikaskóla.  Viðkomandi þarf einnig að sjá um sundkennslu. 
Íþróttakennari Krikaskóla tekur þátt í starfi með fjölbreyttum aldri barna og kemur einnig að öðrum störfum með börnum. 

Meira ...

Gleðilegt sumar

05.07.2013

Logo KrikaskólaFöstudaginn 5. júlí lokar Krikaskóli vegna sumarleyfa. Mánudaginn 8. júlí opnar sumarleikskólinn að Hlaðhömrum fyrir þau börn sem þar eru skráð. Þriðjudaginn 6.ágúst opnar aftur í Sunnukrikanum. Í ágústmánuði stækkar hópur tveggja ára barna í skólanum sem byrjar í aðlögun á tímabilinu frá 8. ágúst til 31. ágúst.
Skólasetning verður mánudaginn 12. ágúst. Þann dag hefst bæði skóli og frístund. Opið er fyrir umsóknir í frístund á íbúagáttinni, eldri umsóknir hafa fallið úr gildi og því þarf að sækja um fyrir öll börn sem verða í frístundinni næsta vetur.



Meira ...

Gæsluleikvöllur Mosfellsbæjar

04.07.2013

LOGO MOSGæsluleikvöllur Mosfellsbæjar verður opinn  frá 1. júlí til og með 1. ágúst.
Opnunartími vallarins er frá 9.00 - 12.00 og frá 13.00 - 16.00.
Á gæsluvöllinn geta komið börn frá 20 mánaða - 6 ára aldurs. Gjaldið er kr. 160 fyrir klst. og þurfa börnin að koma með nesti með sér. Hægt er að kaupa 20 miða/klst. kort á kr. 3.000. Gæsluvöllurinn er staðsettur við Kjarna og er aðkoma að vellinum frá neðra plani.

Meira ...

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira