logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Opið hús Skólaskrifstofu Mosfellsbæjar

17/10/2017
Fyrsta opna hús ársins hjá Fræðslu- og frístundasviði Mosfellsbæjar verður haldið miðvikudaginn 25. október klukkan 20:00. Að þessu sinni verður fyrirlesturinn haldinn í sal Lágafellsskóla.

Fyrirlesari að þessu sinni er Bjarni Fritzson, eigandi sjálfstyrkingarfyrirtækisins Út fyrir kassann, rithöfundur og þjálfari. Í fyrirlestri sínum mun Bjarni fjalla um efni sem hann fór nýverið í með öllum unglingum Mosfellsbæjar á Geðheilsudeginum þann 5. október sl.Í þeim fyrirlestri fjallaði Bjarni um hvað það þýðir að vera leiðtogi í sínu lífi, mikilvægi þess að stefna ávallt að því að verða besta útgáfan af sjálfum sér og hvernig það getur haft jákvæð áhrif á geðheilsu.Hann fjallaði einnig um mikilvægi þess að nýta tímann, taka góðar ákvarðanir og um það hvernig er hægt að nota núvitund til að bæta líðan. Láttu þetta áhugaverða innlegg ekki framhjá þér fara, sjáumst!
Opnu


Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira