logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Fræðslu- og frístundasvið Mosfellsbæjar er með opið hús fyrir foreldra 31 okt kl 20 í Lágafellsskóla

29/10/2018

OPIN HÚS - Útistundir

Miðvikudaginn 31. október er komið að fyrsta opna húsi vetrarins. Að þessu sinni verður fyrirlesturinn haldinn í Lágafellsskóla og hefst kl. 20:00.

Á opnum húsum er lögð áhersla á hagnýt ráð varðandi uppeldi og samskipti við börn og unglinga. Ráð sem foreldrar, systkin, amma og afi, þjálfarar, kennarar og allir sem koma að uppvexti barna og unglinga geta nýtt sér.

Í þessum fyrirlestri verður áherslan á fræðslu um kosti útiveru, kynntar verða aðferðir sem veita fjölskyldum aukinn innblástur og hugmyndir að útivist. Hvernig fagna má einfaldleikanum í útilífi fjölskyldunnar og hvernig taka má fyrstu skrefin í að fjölga útistundum í daglegu lífi og heilbrigði fjölskyldunnar.Útistundir geta auðveldað og létt undir álagstíma fjölskyldunnar.

Fyrirlesararnir Anna Lind Björnsdóttir og Pálína Ósk Hraundal  hafa tileinkað sér auknar útistundir fyrir sínar fjölskyldur í hversdagsleikanum.

Anna Lind er með meistaragráðu í náttúrutengdri ferðaþjónustu. Hún hefur tekið þátt í að auka útivist barna í gegnum félagsstarf, hefur margra ára reynslu af útivist og hefur mikinn áhuga á útikennslu og útilífi fjölskyldunnar. Með sínum brennandi áhuga kveikir hún eldmóð í brjósti samferðafólks.

Pálína Ósk er annar höfundur Útilífsbókar fjölskyldunnar. Hún hefur margra ára reynslu í bæði kennslu og leiðsögn þar sem hún hefur notað ólíkar aðferðir til þess að styrkja jákvæða upplifun utandyra fyrir alla fjölskylduna. Með fjölbreyttar hugmyndir í pokahorninu deilir hún með okkur nýrri nálgunum og aðferðum til útivistar.

Opnu húsin eru fjögur hjá Fræðslu- og frístundasviði og eru haldin síðasta miðvikudag í mánuði yfir veturinn frá klukkan 20-21. Staðsetning auglýst hverju sinni.

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira