logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Leikskólar Mosfellsbæjar loka kl 12:00 föstudaginn 18 janúar 2019

17/12/2018

Í tengslum við þróunarverkefnið „Snemmtæk íhlutun með áherslu á málþroska og læsi“ sem  kynnt var foreldrum fyrr í haust þá fer allt starfsfólk leikskóla Mosfellsbæjar á námskeið um eflingu málfærni og málþroska þann 18. janúar. Svo hægt verði að koma þessu námskeiði að, þarf að loka leikskólanum frá kl. 12:00 þann dag. Að öllu jöfnu er einn sameiginlegur fræðsludagur fyrir starfsfólk leikskóla einu sinni á ári, í ár var hann 25. sept. sl. Árið 2019 mun fræðsludeginum verða  tvískipt og verður helmingurinn þann 18. jan. eftir hádegi og hinn helmingurinn síðar í haust. Búið er að kynna þetta fyrirkomulag í foreldraráðum leikskólaanna sem fyrir sitt leiti hafa stutt þessa ráðstöfun.

Það er mikill fengur fyrir leikskólanna að fá tækifæri til að efla og styrkja þekkingu og færni til að takast á við verkefni sem þetta og að sama skapi er það styrkur fyrir börnin og alla starfsemina. Verkefnið er unnið í samstarfi við Menntamálastofnun og er það Ásthildur B. Snorradóttur talmeinafræðingur sem stýrir því og skipuleggur námskeiðið.

Sambærilegt námskeið/kynning verður fyrir foreldra í haust og viljum við nota tækifræið til að hvetja foreldra til að mæta og vera þar með virkir þátttakendur í þessu mikilvæga verkefni.

Með kveðju,

Gunnhildur María Sæmundsdóttir
Skólafulltrúi, Fræðslusviði
Bæjarskrifstofur Mosfellsbæjar
Sími 525 6700
www.mos.is


Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira