logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Tilkynning frá sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu er varðar starfsemi grunn- og leikskóla

13/03/2020
Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum í dag hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að virkja heimildir sóttvarnalaga sem felur m.a. í sér að skólahald verður takmarkað tímabundið. Nánari útfærslur verða unnar samkvæmt tilmælum stjórnvalda.
Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu vinna nú að skipulagningu skólastarfs m.v. ofangreindar ákvarðanir. Þegar hefur verið ákveðið að mánudaginn 16.mars verði starfsdagur í grunn- og leikskólum á höfuðborgarsvæðinu til þess að stjórnendur og starfsmenn grunn- og leikskóla geti skipulagt skólastarfið sem best á þessu tímabili sem takmörkunin nær til.
Foreldrar leik- og grunnskólabarna eru beðnir um fylgjast vel með upplýsingum sem birtast munu um helgina og á mánudaginn m.a. á heimasíðum sveitarfélagnan og heimasíðum grunn- og leikskóla. Þá eru í undirbúningi sameiginlegar leiðbeiningar sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um frístundaheimili, íþróttastarf, íþróttamannvirki, skólahljómsveitir, og aðrar tómstundir barna.
Virðingarfyllst,
Stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira