logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Fréttasafn

Opið hús hjá skólaskrifstofu - Sjálfbærni, ákall um ábyrgð og áhuga

25.02.2013 12:19

Opið hús- sjálfbærniÍ nýjum aðalnámskrám leik- og grunnskóla er horft til 6 grunnþátta í skólastarfi sem eru læsi, sjálfbærni, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti og sköpun.

Á Opnu húsi Skólaskrifstofu Mosfellsbæjar miðvikudaginn 27. febrúar verður sjónum beint að sjálfbærni

Sjá auglýsingu (.pdf)

Meira ...

Varðandi veikindi barna í Krikaskóla

21.02.2013 12:34

Kalla að hnerraNú eru mörg börn í Krikaskóla veik og því er gott tækifæri að minna á reglur þar um. Hér í Krikaskóla tökum við mið af reglum sem settar voru í Öryggishandbók Mosfellsbæjar fyrir leikskóla.
Mikilvægt er að við tökum höndum saman til að koma í veg fyrir áframhaldandi smit eins og mögulegt er. Reglurnar eru settar m.a. til að vernda þau börn sem ekki eru veik fyrir smiti.
Við höfum einnig þróað okkar vinnureglur í skólanum s.s. varðandi inniveru eftir veikindi eins og sjá má í meðfylgjandi reglum.  Ýta á Lesa meira til að sjá reglurnar.

Meira ...

Fundur vegna samstarfs á milli Krikaskóla og Varmárskóla

19.02.2013 10:57

Krikaskóli merkiKæru foreldar

Fimmtudaginn 21.febrúar 2013 frá kl.20:00-21:30 boðar Þrúður Hjelm skólastjóri ykkur til fundar til að eiga samtal um nám barnanna í Krikaskóla og það samstarf sem er á milli skólans og Varmárskóla. Allar ábendingar foreldra eru vel þegnar og liður í þróun nýs skóla. Við bjóðum ykkur því velkomin til skrafs og ráðagerða um málefni skólans og þar með barnanna okkar. 

Meira ...

Starfsmannafundur föstudaginn 22.febrúar kl.14

15.02.2013 14:37

krikask_01Næsta föstudag þann 22.febrúar verður starfsmannafundur kl.14 í Krikaskóla. Börnin þurfa að vera sótt fyrir þann tíma.

Meira ...

Furðuverur skemmta sér í Krikaskóla

14.02.2013 11:28

Öskudagur 2013Á öskudag birtust allskyns furðuverur hér í Krikaskóla og gerðu sér glaðan dag. Þeim kom afar vel saman og slógu upp hverju ballinu á fætur öðru með tilheyrandi poppslætti.

 

Ýta á Lesa meira til að sjá fleiri myndir.

Meira ...

Popp slegið úr kössum

14.02.2013 11:09

Öskudagur 2013Á öskudag birtust allskyns furðuverur hér í Krikaskóla og gerðu sér glaðan dag. Þeim kom afar vel saman og slógu upp hverju ballinu á fætur öðru með tilheyrandi poppslætti.

Ýta á Lesa meira til að sjá fleiri myndir

 

 

 

 

       

 

 

 

 

      

 

 

 

 

 

 

 

Meira ...

Opið hús hjá skólaskrifstofu Mosfellsbæjar

28.01.2013 12:53

opið hús í janúarHJÁ SKÓLASKRIFSTOFU MOSFELLSBÆJAR

Það verður tamast sem í æskunni nemur

Á Opnu húsi Skólaskrifstofu Mosfellsbæjar miðvikudaginn 30. janúar verður sjónum beint að heilbrigði og velferð og hversu mikilvægt það er að þessir grundvallarþættir endurspeglist í uppeldi barna.

Meira ...

Mánudaginn 4.febrúar er skipulagsdagur í Krikaskóla

24.01.2013 10:59

krikask_01Mánudaginn 4 febrúar er skipulagsdagur í Krikaskóla. Þann dag koma börnin ekki í skólann. Starfsfólkið fær námskeið og skipuleggur starfið framundan.

Meira ...

Síða 22 af 34

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira