logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Fréttasafn

Skólasetning Krikaskóla

12.08.2021 14:05
Skólasetning Krikaskóla verður næstkomandi mánudag 16. ágúst 2021 og haldin utan dyra. Við munum skipta hópnum vegna samkomutakmarkana. 1. og 4. bekkur mæti kl. 9:30 og 2. og 3. bekkur mæti kl. 10:30. Þau verða hjá okkur hefðbundinn skóladag til kl. 14:00. Frístundin tekur svo við þeim börnum sem skráð hafa verið frá kl. 14:00-17:00.
Meira ...

Sumarorlof 2021

08.07.2021 15:21
Sumarorlof í Krikaskóla er frá og með 9. júlí til og með 6. ágúst 2021. .........
Meira ...

Starfsdagur í leikskólanum til kl.12.00

25.03.2021 08:32
Leikskólinn er lokaður til kl.12.00 í dag vegna starfsdags, vegna breytinga á reglugerð um skólahald. The preschools is closed today, Tursday 25. march until 12.00, noon because of tightened COVID-19 regulations.
Meira ...

Innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar

10.03.2021 10:03Innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar
Innritun barna í grunnskóla fyrir skólaárið 2021-2022 er hafin og fer fram í gegnum íbúagátt Mosfellsbæjar. Foreldrar barna sem er að ljúka 4.bekk sækja um fyrir næsta skólaár enn ekki þarf að sækja um skólavist fyrir börnin sem eru að færast á milli Spóa og 1.bekk í Krikaskóla nema ef þau skipta um skóla.
Meira ...

Skráning í sumarleikskóla sumarið 2021

28.01.2021 13:25
Sumarleyfistímabil leikskóla Mosfellsbæjar er frá 15. maí. - 31. ágúst. Leikskólagjald fellur niður einn mánuð á ári, júlímánuð. Sumarleyfi barna er fjórar vikur (20 virkir dagar) sem þurfa að vera samfelldar. Hægt er að bæta við fimmtu vikunni í sumarleyfi og fellur leikskólagjald niður fyrir þá viku líka.
Meira ...

Gjaldskrárhækkun frá 1.janúar 2021

22.12.2020 09:26
Á 750. fundi bæjarstjórnar þann 27. nóvember 2019 voru samþykktar gjaldskrárhækkanir í tengslum við fjárhagsáætlun 2020. Sumar gjaldskrárnar tóku gildi 1. janúar 2020 og aðrar áttu að taka gildi 1. ágúst 2020. Á 763. fundi bæjarstjórnar þann 10. júní var samþykkt að fresta gildistöku þeirra gjaldskráa sem áttu að taka gildi í ágúst og taka þær því gildi núna 31. desember 2020. Janúaráskrift í mötuneyti hækkar úr 400 krónur máltíðin í 410 krónur, ávaxtabiti úr 115 kr í 118 kr, morgunmatur úr 108 í 111 kr og síðdegishressing úr 108 í 111 kr. Klukkustundin í frístund hækkar úr 329 krónum í 337 krónur.
Meira ...

Gleðileg jól og gæfuríkt ár

21.12.2020 09:30
Síðasti kennsludagur í grunnskólastarfinu er föstudagurinn 18. desember og þá munum við halda jólagleðina okkar með óhefðbundnu sniði vegna samkomutakmarkanna. Leikskólinn og frístundin eru opin 21. - 23. desember og milli hátíða 29. og 30. desember........
Meira ...

Gul veðurviðvörun frá kl 09:00 í dag til kl 05:00 á morgun föstudag

26.11.2020 09:31Gul veðurviðvörun frá kl 09:00 í dag til kl 05:00 á morgun föstudag
Gul veðurviðvörun er í dag fimmtudag 26. nóvember frá kl 09:00 til kl. 05:00 föstudaginn 27.nóvember. Forsjáraðilar þurfa að meta sjálfir hvort fylgja þurfi börnum í eða úr skóla eða frístundastarfi. Rétt er að hafa í huga að oft getur verið hvasst í efri byggðum. Ef hálka eða ofankoma fylgir veðrinu aukast líkur á að þörf sé fyrir fylgd.
Meira ...

Röskun á skólastarfi sökum veðurs

25.11.2020 13:25Röskun á skólastarfi sökum veðurs
Leiðbeiningar varðandi röskun á skólastarfi sökum veðurs hafa verið uppfærðar en þær eru gerðar samkvæmt viðvörunarkerfi Veðurstofu Íslands og í samræmi við það er farið yfir hlutverk foreldra/forsjáraðila. Efnið er að finna hér https://shs.is/index.php/fraedsla/roskun-a-skolastarfi/
Meira ...

Lokað mánudaginn 2. nóvember vegna skipulagsdags

01.11.2020 10:41
Krikaskóli er lokaður mánudaginn 2. nóvember vegna skipulagsdags. Almannavarnir og sveitarfélögin hafa ákveðið að loka leik-, grunnskólum og frístundastarfi til að gefa starfsmönnum tækifæri til að endurskipuleggja skólastarf í ljósi nýrrar reglugerðar.
Meira ...

Síða 3 af 34

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira